Halló :) Hér eru myndir af allskonar hinu og þessu sem ég hef verið að búa til úr Fimo leir; armbönd, eyrnalokkar, hálsmen, hárbönd og grímur! Allt er 100% handgert! :)
Efnisorð
Armband
(4)
álfahús
(4)
Barbie
(3)
Blóm
(4)
Dúlla
(1)
eyrnalokkar
(2)
Fimo
(6)
flétta
(2)
Frozen
(1)
fyndið
(1)
Föndur
(4)
Gítar
(1)
Góð ráð
(3)
grímur
(1)
Hama
(1)
Handavinna
(5)
hálsmen
(2)
hárbönd
(1)
Hekl
(7)
Innrömmun
(1)
Kennsla
(6)
Krakkadund
(4)
Leir
(9)
leirhús
(1)
list
(6)
Ljósmyndun
(3)
myndasaga
(4)
myndband
(5)
Myndvinnsla
(1)
Orkering
(3)
perlublóm
(1)
peysuklemma
(1)
Photoshop
(2)
Postulínspennar
(1)
skart
(2)
snjókorn
(1)
styttur
(2)
Tutorial
(7)
Uppskrift
(8)
Sýnir færslur með efnisorðinu Armband. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Armband. Sýna allar færslur
mánudagur, 24. október 2016
laugardagur, 21. mars 2015
Kennslumyndband í Orkeringu: Perlublóma-armband
Hæ aftur :) Enn halda kennslumyndböndin áfram og í þetta sinn ætlum við að prófa að nota perlur og gera svona armband:
Það sem til þarf, eru þráður nr. 10 eða 20, nál númer 5 eða 7, og 40-50 litlar eða meðalstórar perlur (nógu stórar til að nálin komist vel í gegnum þær).
Hafið samband í kommentum hérna eða á www.facebook.com/snedderi
Njótið vel og endilega deilið :)
Það sem til þarf, eru þráður nr. 10 eða 20, nál númer 5 eða 7, og 40-50 litlar eða meðalstórar perlur (nógu stórar til að nálin komist vel í gegnum þær).
Hafið samband í kommentum hérna eða á www.facebook.com/snedderi
Njótið vel og endilega deilið :)
miðvikudagur, 27. ágúst 2014
Uppskrift - Zig-Zag Armband
Þessi uppskrift finnst mér rosalega skemmtilegt, ég hafði hvergi séð zig-zag aðferðina áður en ég prufaði hana þannig að hún er allavega 100% original fyrir mér þó hún sé örugglega til einhversstaðar ;)
Þið þurfið:
*Heklugarn af einhverju tagi. Ég hef notað Mandarin heklugarn en persónulega finnst mér það ekki nógu sterkt, frekar nota ég heklugarn sem ég fæ í Föndru (á Akureyri, en það er væntanlega líka til í Föndru fyrir sunnan) Man bara engan vegin hvað það heitir, en það er miklu meira glansandi en Mandarin og hnökrar nákvæmlega ekki neitt þrátt fyrir að ég fari með armbandið í sturtu og vaski upp með það og hvaðeina :) Ég set inn nafnið næst þegar ég kaupi mér hnykil og ef einhver veit hvað ég er að tala um má sá hinn sami endilega upplýsa mig :)*Heklunál nr 1.0 (þessi nál er tæknilega séð aðeins of lítil fyrir garnið en þetta kemur mun betur út ef það er mjög þétt. Sömuleiðis passar þessi nál í gegnum flestar perlur :)
*Ca. 16 perlur með allavega 1mm gati. Ath. ef þær eru í stærri kantinum gæti aðeins þurft að fækka fastapinnum um einn eða tvo í 16.-17. skrefi.
*"Hook and eye" festingar. Það er hægt að sjá mynd af slíku neðst í þessari uppskrift, annars er hægt að nota hvaða festingar sem er, t.d. eru mjög fallegar segulfestingar í Föndurlist
Byrjum þá :) Passið að hafa soldið langt skott í byrjun til að sauma niður festingarnar seinna :)
Já þá er það komið :) Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega skrifið komment hérna á síðunni eða sendið mér línu á Facebook. Já og ekkert gleður mig meira en að sjá myndir af því sem er heklað eftir uppskriftunum mínum þannig að endilega skellið þeim á vegginn hjá mér :)
Kv. Jódís Eva
miðvikudagur, 28. maí 2014
Uppskrift: Heklað Perluarmband
Þið þurfið:
*Mandarin heklugarn eða sambærilegt (er líka búin að gera svona úr Steinbach Wolle glimmer-heklugarni :) )
*Heklunál nr 1.0 (þessi nál er tæknilega séð alltof lítil fyrir garnið en þetta kemur mun betur út ef það er mjög þétt. Sömuleiðis passar þessi nál í gegnum flestar perlur :)
*16-20 perlur.
*"Hook and eye" festingar (eins og á brjóstahöldurum, sjá mynd neðst).
ATH: Stundum eru stafirnir ekki alveg nógu skýrir hjá mér af því myndirnar þjappast soldið, en ef þið klikkið á þær, opnast þær í nýjum glugga mun stærri :)
Njótið vel :)
Ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er óskýrt, annað hvort hérna eða á facebook-síðunni minni :)
Kv. Jódís Eva
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)








































